Sunnudagur, 30. september 2007
London á sunnudegi
Magnað að búa í London og vera svo alltaf umkringdur einhverju íslensku. Vinir mínir hér eru allir íslenskir. Mjög margir af þeim sem ég vinn með eru íslendingar...og svo er maður alltaf á einhverjum íslenskum eventum.
Fór á Garðar Cortes tónleika í Barbican í London á miðvikudaginn sem var alveg brilljant. Diddú söng með honum en ég er nú svolítið á því að hún hafi skotið honum ref fyrir rass. En bæði voru þrusu góð.
Mamma og pabbi fóru svo í gær, en þegar þau fóru lauk í raun Operation koma sér fyrir í nýju íbúðinni....en dagurinn í dag fer í að flytja draslið hans Viðars yfir sem er nú þegar byrjað.
Man einhver eftir Ross í Friends þegar hann var að flytja??? TIP-IT, TIP-IT , TIIIIPPPPP-IT !!! .... það er minn veruleiki í dag!!!! Stigagangarnir hérna eru ALLTOF þröngir!
Athugasemdir
heheheh.. Friends eru náttla snilld!! ;) vona ganga flutningarnir vel.. ég kíki á þig einhverntíma þegar ég er við hestaheilsu... ehmm! :)
Knús
Supriya Sunneva Kolandavelu, 1.10.2007 kl. 16:49
Til hamingju með flutningana!
Eva Þorsteinsdóttir, 1.10.2007 kl. 17:25
Gummi, gangarnir hér eru alveg góðir ....eg á bara "aðeins" of leiðinlega hluti til flutnings. TIP-IT, TIP-IT dæmið var maganð ....atti svo vel við þarna.
Hvað lærðum við samt á þessum flutning? jú við erum ekki svo góðir verkfræðingar en þá jákvæða að við erum samt betri verkfræðingar núna en fyrir fluning :)
Viddi (IP-tala skráð) 9.10.2007 kl. 23:24