Færsluflokkur: Branding / Mörkun

B.Joseph Pine II verður á Íslandi á föstudag (3.des). Það er hvalreki fyrir markaðsfólk á Íslandi að fá þennan mann í heimsókn!

pine

Simmi og Jói eru flottir markaðsmenn!

simmi-og-joi

Simmi og Jói voru nýlega valdir markaðsmenn ársins af Ímark.   Það eru margar ástæður fyrir því af hverju þeir eiga titilinn skilið.

Joe Pine, sem er á leið til Íslands 3. des á vegum Ímark, færir rök fyrir því að eina leiðin til að aðgreina sig í dag sé með upplifunum.  Vöru úrvalið í öllum vöruflokkum er orðið það mikið að eiginleikar eru ekki lengur nóg.  Allir geta afritað eiginleika vara. Það er hins vegar erfiðara að afrita upplifunina.  iPod er t.d. ekki besti MP3 spilarinn, það eru til aðrir sem eru ódýrari og með fleiri eiginleikum. Samt vilja allir Apple iPad.  Engin vill heldur spilara sem er ,,eiginlega alveg eins" og iPad, þó hann sé jafnvel aðeins ódýrari - þá er hann fake!

Simmi og Jói hafa byggt upp veitingastað sem selur mjög staðlaða vöru, hamborgara, en þeir pakka henni inn í upplifun sem er einstök og fólki að skapi.

 

Í fyrsta lagi er öll hönnun á staðnum glæsileg og öll í sama stíl (allt frá matseðli til innréttinga).  

Í öðru lagi eru þeir frægir og mjög oft á staðnum ef maður snæðir á Hamborgarafabrikkunni sem gerir það svolítið ,,öðruvísi" að fara þangað.

Í þriðja lagi er maturinn frábær og settur fram á svolítið öðruvísi hátt 

Með þessu þrennu hefur þeim tekist að búa til veitingastað sem selur staðlaða vöru sem er einstök í umbúðunum sem þeir matreiða hana í.  Það getur engin kóperað Hamborgarafabrikkuna - því hún er einstök! 

Ég er mjög ánægður með að þessir félagar mínir hrepptu verðlaunin í ár.  Þeir hafa búið til flotta vöru sem fólki líkar við.  Þeir hafa ennfremur kynnt hana geysilega vel.

Simmi og Jói eru vel að titlinum komnir!


Á Starbucks að fara út í bjórsölu?

Laura Rice, dóttir og samstarfsfélagi Al Rice sem flest markaðsfólk þekkir fyrir að gefa út bókina Positioning mætir hér Scott Bedbury - vin Kevin Keller og fyrrum markaðsstjóra Nike og Starbucks.

Þau takast á í CNBC viðtali um þetta nýja útspil kaffikeðjunnar.

 


Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband