Færsluflokkur: Bloggar
Mánudagur, 14. júní 2010
Ný auglýsingaherferð frá Icelandair farin af stað
Við erum frá Íslandi from Icelandair on Vimeo.
Sjónvarpsauglýsing Icelandair sumarið 2010. Þemað er að við séum íslendingar frá Íslandi, sama hvar við erum í heiminum.
Fimmtudagur, 10. júní 2010
Áhugaverð könnun um viðhorf til vörumerkja (og leikja) í Harvard Business Review
Mánudagur, 12. apríl 2010
Kastljós viðtal vegna Markaðssetningar á netinu í febrúar
Föstudagur, 12. mars 2010
Capacent segir netið í mikilli sókn á Íslandi (skv. nýrri könnun á meðal íslenskra markaðsstjóra)
Föstudagur, 8. janúar 2010
Markaðssetning á netinu – námskeið fyrir félagsmenn SAF
Um hvað snýst námskeiðið?
Farið verður yfir helstu samskiptaleiðir netsins á hagnýtan hátt með áherslu á ferðaþjónustu og hvernig samskiptaleiðir netsins geta skapað til miklar tekjur. Markmiðið er að þátttakendur öðlist þekkingu sem nýtist þeim strax í starfi.
Kennslan byggir á bókinni Markaðssetning á netinu en bókin er jafnframt innifalin í þátttökugjaldi námskeiðsins.
Dagsetning , lengd námskeiðsins og innihald
Um er að ræða rúmlega 5 klst. námskeið sem stendur frá kl. 13:00 18:00 þann 20. janúar nk. í Borgartúni 35, 6. Hæð. Helstu þættir:
Netið, breytingar og tækifæri staðan í dag
Vefborðar
Leitarvélar
Samfélagsmiðlar
Kaffi, smá pása og spjall
Tölvupóstar
- Vefgreiningartól
Um bókina sem er innifalin í námskeiðinu á kynningarverði til SAF félaga:
Bókin Markaðssetning á netinu hefur það að leiðarljósi að vera hagnýt verkfærakista fyrir íslenskt markaðsfólk sem er eða vill byrja að nota netið í sínu markaðsstarfi. Í henni er fjallað um allar helstu samskiptaleiðir netsins. Bókin er jafnframt full af nýjum innlendum og erlendum rannsóknum um notkun fólks á netinu og hvernig ná má hámarksárangri. Ennfremur eru í bókinni fjölmagar íslenskar dæmisögur og tölur sem íslenskt markaðsfólk getur nýtt sér í daglegu störfum.
Í dag er allt markaðsstarf meira og minna unnið með netið í huga. Bókin kynnir nýjar áður óbirtar rannsóknir sýna hversu langt Íslendingar hafa náð í notkun netsins. Tækifæri íslenskra fyrirtækja eru því fjölmörg.
Eftir námskeiðið og lestur bókarinnar ætti fólk að vera mun betur upplýst um:
þær breytingar sem orðið hafa á hegðun neytenda
hið breytta umhverfi sem fyrirtæki og vörumerki starfa í
þau fjölmörgu tækifæri sem eru á netinu í dag og hægt er að nýta með litlum tilkostnaði
hvernig ná má hámarksárangri með vefborðum
hvernig ná má hámarksárangri með leitarvélum
hvernig ná má hámarksárangri með samfélagsmiðlum (Facebook o.s.frv.)
hvernig ná má hámarksárangri með tölvupóstum
hvernig netið kemur inn í hefðbundnar birtingaáætlanir
á hvern hátt vefgreiningartól virka og hvernig best er að nota þau
og fleira og fleira!
Tilboð til félagsmanna SAF og skráning:
Fullt verð er kr. 50.000,- Tilboðsverð til félagsmanna SAF er kr. 34.900 og er bókin og öll námskeiðsgögn innifalin í verðinu. Skráning á info@saf.is eða í síma 511 8000.
Fimmtudagur, 24. desember 2009
Gleðileg Jól
Langar að óska öllum sem fylgdust með blogginu mínu á árinu gleðilegra jóla og farsældar á komandi ári!