Fimmtudagur, 18. nóvember 2010
50 uppfinningar frá Kína, Brasilíu, Indlandi og öðrum vaxandi hagkerfum!
Miðvikudagur, 17. nóvember 2010
Bein markaðssetning óreiðumanna :)
DEAR SIR,
I AM CONTACTING YOU FROM MY OFFICE CONFIDENTIALLY CONCERNING THE IMMEDIATE TRANSFER OF AN AMOUNT OF MONEY FROM HERE IN ABIDJAN WEST AFRICA.
THIS MONEY IN QUESTION IS USD $2.2 MILLION DOLLARS AND THE FUND IS CURRENTLY IN THE BANK OF AFRICA IN A SUSPENSE ACCOUNT AND I WANT YOU TO HELP ME TO RECEIVE THE MONEY IN YOUR BANK ACCOUNT SO THAT I CAN COME OVER TO MEET WITH YOU FOR THE SHARING OF THE FUND AS I HAVE AGREED TO OFFER YOU 20% OF THE TOTAL FUND WHILE THE REST OF 80% WILL BE THERE IN YOUR BANK ACCOUNT UNTIL I WILL MEET WITH YOU AS SOON AS THE TRANSACTION IS OVER.
PLEASE SEND ME YOUR DIRECT AND CONFIDENTIAL TELEPHONE NUMBER SO THAT I CAN CALL YOU SO THAT WE CAN TALK IN FULL DETAILS AND I WILL SEND YOU THE NECESSARY DOCUMENTS INVOLVED.
I AM WAITING FOR YOUR EMAIL RESPONSE URGENTLY.
THANKS.
ENGR IBRAHIM WAHALA
Þriðjudagur, 16. nóvember 2010
Enginn markaðsmaður má missa af þessu!! Joseph Pine II að koma til Íslands 3. des
Þriðjudagur, 16. nóvember 2010
Samkeppni er ekki alltaf fyrirsjáanleg!

Mánudagur, 15. nóvember 2010
Þórmundur hjá MediaCom í sjónvarpsviðtali um íslenska fjölmiðla og markaðssetningu
Alkemistinn 10NOV10 from Vidar Gardarsson on Vimeo.
Mánudagur, 15. nóvember 2010
Um hvað snýst Experience Marketing?
Ég heyrði bestu lýsinguna nýlega.
Mamma ungabarns lendir í því að barnið lokar munninum og tekur ekki við grautnum sem verið er að reyna gefa því. Hún reynir og reynir en gefst loksins upp og pabbinn tekur við. Hann setur graut í skeiðina og byrjar að gera þotuhljóð - líkt og skeiðin sé flugvél sem flýgur í kringum barnið og loks í áttina að munninum.
Nú er búið að setja af stað smá leikrit fyrir barnið svo það taki við matnum.
Viti menn, við þessa leikrænu viðbót við matargjöfina opnar barnið munninn rétt eins og um risa flugskýli væri að ræða og borðar nú matinn að bestu list.
Í þessu dæmi er búið að búa til upplifun úr þessari ,,venjulegu" matargjöf. Árangurinn? Barnið velur að borða nú matinn og það með bestu list!
Joe Pine, einn helsti snillingur heimsins í þessum fræðum verður á Íslandi á vegum Ímark og Íslandsstofu 3. desember - það er óhætt að gefa þeim viðburði bestu meðmæli! Það er hægt að sjá myndband með Joe Pine hér http://gummiarnar.blog.is/blog/gummiarnar/entry/1091911/
- - -
Næsta námskeið hjá okkur Kristjáni í Markaðssetningu á netinu er nú að verða uppselt og við því farnir að horfa til 13. desember, sem er síðasta námskeið ársins. Það eru einnig töluvert mörg fyrirtæki sem hafa keypt hjá okkur einkanámskeið til loka árs - en það er án efa skilvirkasta leiðin fyrir fyrirtæki sem eru með marga starfsmenn sem þarf að þjálfa.
Sunnudagur, 14. nóvember 2010
Lykilhæfileikar markaðsfólks - leiðtogahæfileikar

Laugardagur, 13. nóvember 2010
Á Starbucks að fara út í bjórsölu?
Laura Rice, dóttir og samstarfsfélagi Al Rice sem flest markaðsfólk þekkir fyrir að gefa út bókina Positioning mætir hér Scott Bedbury - vin Kevin Keller og fyrrum markaðsstjóra Nike og Starbucks.
Þau takast á í CNBC viðtali um þetta nýja útspil kaffikeðjunnar.
Föstudagur, 12. nóvember 2010
Anne Kennedy að tala um samfélagsmiðla í Kastljósinu í kvöld
Þriðjudagur, 26. október 2010
Alistair MacCallum, framkvæmdastjóri M2M fjölmiðlahús á Íslandi næsta föstudag!
Mánudagur, 25. október 2010
Íslenskur sjónvarpsþáttur um markaðsmál - Alkemistinn, nýjasti þáttur!
Alkemistinn 20OKT10 from Vidar Gardarsson on Vimeo.
Föstudagur, 15. október 2010
Einar frá Umferðarstofu að tala um hræðsluauglýsingar í sjónvarpsþættinum Alkemistinn
Alkemistinn 06OKT10 from Vidar Gardarsson on Vimeo.
Miðvikudagur, 13. október 2010
NHS - anti-reykingar
Þriðjudagur, 12. október 2010
Ryanair er skólabókadæmi um challenger brand!
Sigur í samkeppni | Breytt 26.9.2010 kl. 23:02 | Slóð | Facebook
Þriðjudagur, 12. október 2010
Bækur eru ekki að deyja - en verða á öðru formi. Verður framtíðin svona?
The Future of the Book. from IDEO on Vimeo.
Mánudagur, 11. október 2010
22 Lögmál markaðarins - ein af betri markaðsfræðibókunum eftir Al Ries og Jack Trout
- Nr 1--Lögmálið um forystuna: Betra að vera fyrstur en bestur
- Nr 2--Lögmálið um sviðið: Ef þú ert ekki fyrstur á einhverju sviði, búðu þá til nýtt svið þar sem þú ert fyrstur.
- Nr 3--Lögmálið um hugann: Betra að vera það fyrsta sem kemur upp í hugann en að vera fyrstur á markaðstorginu
- Nr 4--Lögmálið um skynjun: Markaðssetning er ekki barátta um varning heldur skynjun
- Nr 5--Lögmálið um athygli: Öflugasta hugtakið í markaðssetningu er að eiga orð sem kemur upp í huga hins hugsanlega kaupanda
- Nr 6--Lögmálið um sérstöðu: Tvö fyrirtæki geta ekki átt sama orðið sem kemur upp í huga hugsanlegs kaupanda
- Nr 7--Lögmálið um röðun: Mismunandi markaðsstefna eftir því hvar þú ert í röðinni í huga neytandans
- Nr 8--Lögmálið um tvískiptingu: Þegar fram í sækir verður baráttan ávallt á milli tveggja fyrirtækja
- Nr 9--Lögmálið um hið gagnstæða: Til þess að ná sterkri stöðu gegn leiðtoga á að bjóða kost sem er andstæðan við aðal kost hans
- Nr 10-- Lögmálið um skiptingu: Með tímanum munu öll svið skiptast upp í undirsvið, t.d. tölvur, tónlist, bílar, gosdrykkir
- Nr 11og 12--Lögmálið um yfirsýn og útþenslu: Áhrifa markaðssetningar gætir yfir langt tímabil og oft fer ekki saman skammtíma- og langtíma sjónarmið, t.d. afslættir ýmis konar.
- Nr. 13-Lögmálið um fórnina: Það er hægt að fórna þrennu: vörulínu, markhóp og breytingumMörg dæmi sanna að fyrirtæki sem reyna að vera allt fyrir alla fari illa
- Nr 14--Lögmálið um eiginleika: Sá eiginleiki sem skiptir neytendur mestu oft upptekinn af leiðtoga. Finna annan eiginleika og gera að sínum eða andstöðuna við eiginleika andstæðingsins,
- Nr 15--Lögmálið um hreinskilni: Þegar þú viðurkennir veika hlið þá færðu jákvætt viðmót frá hugsanlegum neytendum
- Nr 16 og 17--Lögmálið um hið einstaka og ófyrirséða: Þær aðgerðir sem skila virkilegum árangri eru ávallt óvæntar
- Nr 18--Lögmálið um velgengni: Sjálfsöryggi er versti óvinur velgengninnar því þá er hætta á að viðkomandi telji sínar þarfir vera þarfir markaðarins
- Nr 19--Lögmálið um mistök: Skipuleggjum okkur upp á nýtt og björgum málunum. Ekki leiðin því ef okkur mistekst þá eigum við að viðurkenna það og draga okkur til baka
- Nr 20--Lögmálið um gífurlegar breytingar: Oft spá fjölmiðlar gífurlegum breytingum á einhverju sviði og gera of mikið úr afleiðinum þeirra
- Nr 21--Lögmálið um (tísku)sveiflu: Oft ruglast fyrirtæki á sveiflu og þjóðfélagslegri breytingu þ.e.a.s. stefnu og fara flatt á því, t.d. Cabbage kids og önnur leikföng
- Nr 22--Lögmálið um fjármagn: Engin hugmynd sama hversu góð hún er verður aldrei að veruleika nema nægjanlegt fjármagn sé til staðar. Það kostar peninga að berjast um hlutdeild af huga neytenda og halda honum
Föstudagur, 8. október 2010
Hvað er það sem hvetur starfsfólk mest áfram?
Samkvæmt rannsóknum í USA er þetta röðunin á því sem hvetur starfsfólk mest áfram. Aftari talan er það sem yfirmenn héldu að skipti starfsfólk mestu máli samkvæmt sömu rannsókn.
Fimmtudagur, 7. október 2010
Óánægðir viðskiptavinir, hefur þitt fyrirtæki efni á þeim?
Miðvikudagur, 6. október 2010