22 Lögmál markaðarins - ein af betri markaðsfræðibókunum eftir Al Ries og Jack Trout

Lögmálin 22 eru:

  • Nr 1--Lögmálið um forystuna: Betra að vera fyrstur en bestur
  • Nr 2--Lögmálið um sviðið: Ef þú ert ekki fyrstur á einhverju sviði, búðu þá til nýtt svið þar sem þú ert fyrstur.
  • Nr 3--Lögmálið um hugann:  Betra að vera það fyrsta sem kemur upp í hugann en að vera fyrstur á markaðstorginu
  • Nr 4--Lögmálið um skynjun: Markaðssetning er ekki barátta um varning heldur skynjun
  • Nr 5--Lögmálið um athygli: Öflugasta hugtakið í markaðssetningu er að eiga orð sem kemur upp í huga hins hugsanlega kaupanda
  • Nr 6--Lögmálið um sérstöðu: Tvö fyrirtæki geta ekki átt sama orðið sem kemur upp í huga hugsanlegs kaupanda
  • Nr 7--Lögmálið um röðun: Mismunandi markaðsstefna eftir því hvar þú ert í röðinni í huga neytandans
  • Nr 8--Lögmálið um tvískiptingu: Þegar fram í sækir verður baráttan ávallt á milli tveggja fyrirtækja
  • Nr 9--Lögmálið um hið gagnstæða: Til þess að ná sterkri stöðu gegn leiðtoga á að bjóða kost sem er andstæðan við aðal kost hans
  • Nr 10-- Lögmálið um skiptingu: Með tímanum munu öll svið skiptast upp í undirsvið, t.d. tölvur, tónlist, bílar,  gosdrykkir 
  • Nr 11og 12--Lögmálið um yfirsýn og útþenslu: Áhrifa markaðssetningar gætir yfir langt tímabil og oft fer ekki saman skammtíma- og langtíma sjónarmið, t.d. afslættir ýmis konar.  
  • Nr. 13-Lögmálið um fórnina: Það er hægt að fórna þrennu: vörulínu, markhóp og breytingumMörg dæmi sanna að fyrirtæki sem reyna að vera allt fyrir alla fari  illa
  • Nr 14--Lögmálið um eiginleika: Sá eiginleiki sem skiptir neytendur mestu oft upptekinn af leiðtoga. Finna annan eiginleika og gera að sínum eða andstöðuna við eiginleika andstæðingsins,
  • Nr 15--Lögmálið um hreinskilni: Þegar þú viðurkennir veika hlið þá færðu jákvætt viðmót frá hugsanlegum neytendum
  • Nr 16 og 17--Lögmálið um hið einstaka og ófyrirséða: Þær aðgerðir sem skila virkilegum árangri eru ávallt óvæntar
  • Nr 18--Lögmálið um velgengni: Sjálfsöryggi er versti óvinur velgengninnar því þá er hætta á að viðkomandi telji sínar þarfir vera þarfir markaðarins
  • Nr 19--Lögmálið um mistök: Skipuleggjum okkur upp á nýtt og björgum málunum.  Ekki leiðin því ef okkur mistekst þá eigum við að viðurkenna það og draga okkur til baka
  • Nr 20--Lögmálið um gífurlegar breytingar: Oft spá fjölmiðlar gífurlegum breytingum á einhverju sviði og gera of mikið úr afleiðinum þeirra
  • Nr 21--Lögmálið um (tísku)sveiflu: Oft ruglast fyrirtæki á sveiflu og þjóðfélagslegri breytingu þ.e.a.s. stefnu og fara flatt á því, t.d. Cabbage kids og önnur leikföng
  • Nr 22--Lögmálið um fjármagn: Engin hugmynd sama hversu góð hún er verður aldrei að veruleika nema nægjanlegt fjármagn sé til staðar. Það kostar peninga að berjast um hlutdeild af huga neytenda og halda honum

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband