Föstudagur, 30. apríl 2010
Gríðarlegt markaðstækifæri fyrir Ísland - og Skýrr ráðstefna
Ég fór í dag á ráðstefnu hjá Skýrr um markaðssetningu á netinu. Þar kom margt áhugavert fram. Ég var virkilega hrifin af fyrirlestri Kjartans Sverris sem ég starfa með hjá Icelandair. Icelandair hefur nú í áföllum undanfarinna vikna náð miklum árangri í dreifingu frétta á samfélagsmiðlunum. Það var margt áhugavert í kynningu Kjartans. T.d. að Flugherinn í US er að opna á samfélagsmiðlana í öllum herstöðvunum sínum út um allan heim. Fyrst þeir leyfa starfsmönnum sínum að vera þar...þá ættu öll fyrirtæki að geta gert það! Mantra flughersins "It's our GOAL to make every single airman in the force part of the communication team."
Ætla fjalla betur um þessa vel lukkuðu ráðstefnu fljótlega.
- - -
Með því að nota Google Trend tólið er hægt að sjá hvernig leitum eftir "Iceland" hefur fjölgað gríðarlega eftir að eldgosið hófst. Bankahrunið var bara ,,grín" miða við athyglina sem landið er að fá núna eins og myndin að neðan sýnir (sýnir fjölda leita sem inniheldur orðið Iceland frá 2004 til dagsins í dag).

Vísindi og fræði | Breytt 1.5.2010 kl. 07:59 | Slóð | Facebook
Fimmtudagur, 29. apríl 2010
Í gær var ég í Alkemistanum á Inn að tala um námskeiðið okkar í markaðssetningu á netinu
Kjartan Sverrisson, samstarfsfélagi minn hjá Icelandair var svo í seinni hlutanum en við eigum það sameiginlegt að hafa mikla trú á að auglýsingar á netinu geti skilað miklum árangri.
Alkemistinn 28APR10 from Vidar Gardarsson on Vimeo.
Auglýsingar | Breytt s.d. kl. 20:47 | Slóð | Facebook
Þriðjudagur, 27. apríl 2010
Kristján Már í viðtali á Bylgjunni um auglýsingar og Markaðssetningu á netinu
Kristján Már var í dag í viðtali í Reykajvík Síðdegis á Bylgjunni. Þar talaði hann um námskeiðin okkar sem við höfum verið með út um allt land í Markaðssetningu á netinu.
Hægt er að hlusta á viðtalið við kristján hér http://bylgjan.visir.is/lisalib/getfile.aspx?itemid=54201
Nú eru aðeins tvö námskeið eftir, nánari upplýsingar um þau á www.online.is.
Þriðjudagur, 27. apríl 2010
Námskeið í Markaðssetningu á netinu og tenglaskiptatilraun
Þá erum við félagarnir komnir í pásu frá námskeiðunum til 10 maí, en þá og 11 eru síðustu námskeiðin okkar og sumarið tekur við. Þetta er búið að vera mikið ævintýri. Ekki bara vegna margra misheppnaða tilrauna til að lenda á Akureyrarflugvelli, því við urðum bensínlausir í Hvalfjarðargöngunum og urðum næstum því úti á heiðinni.
Heldur vegna þess fjölda sem við höfum hitt og fengið tækifæri til að deila með hvernig hægt er að nýta netið svo hámarks árangur náist. Við höfum einnig safnað miklum fjölda dæmisagna sem er gott veganesti fyrir áframhaldandi þróun á bókinni.
Það hefur satt best að segja verið mikill heiður að vinna með Kristjáni Má að þessu frábæra verkefni sem hefur jafnframt lukkast svona vel. Kristján er ekki bara hörku duglegur og klár heldur einnig alveg ferlega skemmtilegur...sem hefur gert allt verkefnið mun eftirminnilegra en ella.
Við erum núna leyfa þátttakendum á námskeiðinu hjá okkur að njóta góðs af smá tilraun sem er í gangi...sem við ætlum að gera reglulega. Tilraunin er í tenglaskiptum til að ná árangri á Google.
Minn hluti í tilrauninni er að ná árangri með leitarorðinu Auglýsingar. Það er Googlað 2900 sinnum í hverjum mánuði en stefnan er tekin eins ofarlega og hægt er á niðurstöðum Google fyrir bloggið. Verkefnið hófst með innri breytingum á síðunni 25. apríl, en þá kom bloggið aldrei upp ef auglýsingar voru googlaðar. Núna kemur bloggið upp á bls 3, í 3 sæti...aðeins 2 dögum eftir að af stað var farið!
Viðskipti og fjármál | Breytt s.d. kl. 07:34 | Slóð | Facebook
Laugardagur, 24. apríl 2010
Markaðssetning á netinu: Hvaða samfélagsmiðlar eru að fá flestar heimsóknir í Bandaríkjunum?
Viðskipti og fjármál | Breytt s.d. kl. 00:28 | Slóð | Facebook
Fimmtudagur, 22. apríl 2010
Er markhópurinn þinn að finna þig eða er markaðssetning á netinu ekki til staðar?

Það hefur gríðarlega mikill breyting átt sér stað á kauphegðun með tilkomu netsins. Flestir íslendingar byrja t.d. á því að Googla þegar þeir leita að upplýsingum fyrir kaup á vöru og þjónustu. Á eftir að Googla, kemur að fara á heimasíður fyrirtækja. Markaðssetning á netinu er því orðin geysilega mikilvæg!
Fyrirtæki geta ákveðið að vera ekki á netinu, en ef markhópur fyrirtækisins er þar er tvennt sem getur gerst:
1. Markhópurinn Googlar fyrir kaup og finnur samkeppnina, ekki fyrirtækið þitt. Fyrirtækið þitt tapar viðskiptum.
2. Markhópurinn Googlar og finnur blogg frá einhverjum Jóni út í bæ sem hefur kannski ekki góða sögu af fyrirtækinu þínu. Fyrstu kynni þeirra sem þekkja þig ekki innan markhópsins litast því af því hvað einhver Jón út í bæ er að segja um þig á blogginu sínu, sem kemur upp þegar fyrirtækið þitt er googlað...sem aftur getur gefið kolranga mynd af þjónustu fyrirtækisins! Öll fyrirtæki verða því að fylgjast með umræðunni og taka markaðssetningu á netinu mjög alvarlega!
Allen Adamson, komst skemmtilega að orði þegar hann lýsti breytingunum:
,,Í gamla daga, ef fólk vildi fá upplýsingar um einhverja vöru, þurfti það að fara út í garð og teygja sig yfir girðinguna til nágrannans og spyrja. Síðar lá fólk í sófanum heima hjá sér og sjónvarpið sá um að hjálpa fólki að finna réttu vöruna með 30 sek auglýsingum. Í dag erum við aftur farin út í garð, en garðurinn í dag er stafrænn þar sem fólk getur hallað sér yfir grindverkið og spurt hvern sem er sama hvar hann býr.
Viðskipti og fjármál | Breytt s.d. kl. 23:15 | Slóð | Facebook
Fimmtudagur, 22. apríl 2010
Hversu vel virka Facebook auglýsingar - Ný Nielsen rannsókn.
Markaðsrannsóknarfyrirtækið Nielsen hefur skoðað árangur Facebook auglýsinga, og þá samanburð á árangri auglýsinga sem eru keyptar miða við árangur af auglýsingum sem eru keyptar ásamt því að vera dreift/"liked" af vinum á samfélagsmiðlinum. Könnunin var gerð yfir 6 mánaða tímabil, gögn frá 800.000 notendum voru notuð, 125 herferðir frá 70 auglýsendum.
Myndin að neðan sýnir mun áhrifa á hug fólks eftir því hvort það sér auglýsingu eða sér auglýsingu og líkar hún (gefur þumal)
Fólk sem sér bæði auglýsingu á vegg vina og sáu keyptu auglýsinguna eru þrisvar sinnum líklegri til að muna eftir auglýsingunni. Vörumerkjavitund fólks jókst um 4% við að sjá auglýsinguna á Facebook, en þegar fólk sá líka skilaboðin á veggjum vina jókst vörumerkjavitund um tæplega 12%.
Mánudagur, 19. apríl 2010
Barnið, bloggið og markaðssetning
Fjölskyldan stækkaði í lok síðasta mánaðar. Strákurinn á myndinni fyrir neðan kom þá í heiminn og breytti pabbanum ótrúlega. Það er ólýsanleg tilfinning að sjá barnið sitt koma í heiminn en ég held að önnur eins ást sé ekki til í heiminum!
- - -
Við félagarnir erum að fara á Sauðárkrók í dag, en eftir námskeið dagsins eru aðeins 3 eftir í landsátakinu okkar með Útflutningsráði og MBL.IS. Þetta er búið að vera merkilegt ferðalag og ótrúlega lærdómsríkt. Við erum einnig að ljúka við að koma bókinni okkar í það form að við getum farið að þróa hana áfram. Það verða þó nokkrir auka kaflar sem bætast við hana, en allir núverandi kaflar dýpka og breikka en við munum skrifa ferðalagið okkar inn í alla kafla þar sem við höfum safnað alveg ótrúlegu magni af reynslusögum. Stefnum að nýrri útgáfu í Janúar 2011.
- - -
Ég er mikið lestrar nörd, reyni að lesa 2-3 bækur í hverjum mánuði en miklu meira af greinum. Hef sett mér það markmið að setja hér inn vikulegt summary af rannsóknum í markaðsfræðum sem mér þykir áhugaverðar. Vonandi getur fyrsta dottið inn síðar í dag eða á morgun.
- - -
Við Kristján höfum fengið vin okkar til að fara með okkur á Sauðárkrók í dag í lítilli flugvél. 8 klst ferðalag í bíl verður því um 2 klst! Leggjum í hann um kl 14 en námskeiðið byrjar kl 16 en það eru 30 manns skráðir svo við búumst við stórskemmtilegum degi! Á morgun er það svo fyrsti vinnudagur hjá Icelandair aftur eftir barneignarfrí, en mikið er búið að ganga á þar undanfarna daga eins og allir vita. Það verður gaman að mæta aftur til leiks og byrja taka á því!
Viðskipti og fjármál | Breytt 23.4.2010 kl. 18:04 | Slóð | Facebook
Mánudagur, 12. apríl 2010
Kastljós viðtal vegna Markaðssetningar á netinu í febrúar
Mánudagur, 12. apríl 2010
Markaðssetning á netinu - Síðasti séns að bóka!
Laugardagur, 27. mars 2010
Verða Sautján, Herragarðurinn, Selected og GK svona í framtíðinni? Og allar tengdar við Facebook (og hvað vinunum finnst)
Fimmtudagur, 25. mars 2010
Markaðsfólk...hvað eru vörumerki í raun?
Ég er að lesa alveg frábæra bók þessa dagana "A brand new world" eftir Scott Bedbury.
Sjálfur finn ég mikið fyrir því að fólk skilur ekki alveg hvað vörumerki eru í raun en því fannst mér þessi orð Bedbury frábær:
,,A brand is the sum of the good, the bad, the ugly, and the off-strategy. It is defined by your best product as well as your worst product. It is defined by award winning advertising as well as by the god-awful ads that somehow slipped through the cracks, got approved, and, not surprisingly, sank into oblivion. It is defined by the accomplishments of your best employee- the shining star in the company who can do no wrong - as well as by the mishaps of the worst hire that you ever made.
It is also defined by your receptionist and the music your customers are subjected to when placed on hold. For every grand and finely worded public statement by the CEO, the brand is also defined by derisory customer comments overheard in the hallway or in a chat room on the Internet. Brands are sponges for content, for images, for fleeting feelings. They become psychological concepts held in the minds of the public, where they may stay forever.
As such you can't entirely control a brand. At best you only guide and influence it."
Fimmtudagur, 18. mars 2010
Mjög óheppileg staðsetning á auglýsingum!
Miðvikudagur, 17. mars 2010
Það sem fólk setur á Facebook er ótrúlegt!
Þriðjudagur, 16. mars 2010
Markaðsmál: Kevin Lane Keller á Íslandi - um markaðssetningu á netinu
Það voru mikil forréttindi að hitta og fá að spjalla við Dr. Kevin Lane Keller þegar hann kom til Íslands á vegum Ímark. Í einkasamtölum við hann, en einnig í fyrirlestrinum hjá Ímark, minntist hann aðeins á samfélagsmiðlana. Hann sá alveg tækifæri þar eins og við hinir en varaði fólk við að missa sig hvað varðar miðlana og setti fram þessi fleygu orð:
Although consumers are more actively involved in the fortunes of brands than they have ever been before, just remember ...
- only some of the consumers want to get involved
- with some of the brands they use
- and even then, only some of the time
Viðskipti og fjármál | Breytt s.d. kl. 19:54 | Slóð | Facebook
Mánudagur, 15. mars 2010
Vefborðar áhrifaríkir við markaðssetningu á netinu
Í nýjasta AdMap (mars '10) er grein eftir speking frá Nielsen. Fyrirtækið er búið að vera gera stórar rannsóknir á árangri vefborða m.t.t. hversu marga smelli þeir fá.
Rannsóknir Nielsen benda til þess að vefborðar hafi 20 sinnum meiri áhrif, að öllu jöfnu, en smellihlutfall þeirra (Click through rate) gefur til kynna.
Föstudagur, 12. mars 2010