Lífið...

Frábær helgi á Íslandi að baki.

Fór með frúnni í Leikhús að sjá Alveg brilljant skilnaður á laugardagskvöldið og svo á uppáhalds veitingastaðinn minn í Reykjavík, Sjávarkjallarann.  Hann bara klikkar ekki.  Þaðan var haldið í miðbæjar-teiti, kíkt á EGO...og endað á Apótekinu í smá tíma fyrir heimför.  Frábært kvöld.

Ég flyt heim 5 Júní, svo þeir eru nú ekki margir dagarnir eftir í London en hugurinn er alveg farinn heim.

Stína frænka ásamt Guðbjörgu eru í heimsókn hjá mér en fara í kvöld, þá kemur bróðir minn og Kristjana og verða fram á laugardag...en sjálfur fer ég til Íslands á föstudagskvöld og kem til baka í næstu.   Nóg að gera og mikill gestagangur á lokasprettinum. 

Skrítið að hugsa til þess að það séu bara 11 vinnudagar eftir!


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Njóttu síðustu dagana í London - hlakka til að fá þig heim

Donnan þín (IP-tala skráð) 21.5.2008 kl. 14:23

2 Smámynd: Sigurður Þorsteinsson

Fékk enga heimsókn  Fer í frí 6 þannig að við hittumst ekki í kaffi fyrr en í byrjun júlí.  Velkominn í Kópavoginn, þar er gott að búa. Þú ert hefur formlega verið tekinn inn í markaðsnefndina

Sigurður Þorsteinsson, 27.5.2008 kl. 07:07

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband