Ótrúlega magnað

Það er nákvæmlega ekkert að marka þessa fyrirsögn þar sem áhugaverð málefni til að deila með heiminum eru af skornum skammti þennan morguninn.

Sit á Heathrow á leiðinni til Íslands. 

Fyndið hvað maður er vanafastur.  Ég t.d. kíki alltaf í bókabúðina hérna, töskubúðina með Tumi töskurnar og borða alltaf á Giraffe.  Á Giraffe borða ég alltaf Chicken Snitzel og drekk reyndar annaðhvort léttvín eða kók með.  Kók í þetta skiptið...og drep tímann þar til maður hoppar í flug.

Við biðina gefst tími til að spá í asnalegustu hlutum.  T.d. er ég búinn að eyða meira en viku samtals í flugvél á þessu ári.  Fljót reiknað fara 19 sinnum á milli Íslands og UK, fyrir utan aðrar ferðir. 

Djöfull er þetta eitthvað sad bloggfærsla, ætla rölta út í gate.

...að eilífu

Gummi

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband