12 furðulegir hlutir hér í Tokyo

 
  1. Karókí er ótrúlega vinsælt hérna, karókístaðir út allt! Alltaf hægt að stökkva inn einhverstaðar og syngja nokkur lög!
  2. Klósettin hérna eru með helling af tökkum. Sum tala, önnur er hægt að láta gera “sturta niður hljóð”, spúl í öllum með bunu, úða og mismunandi styrkleikum...að meðaltali svona 6-8 takkar á hverju klósetti
  3. Hér er allt í small, Japanir eru ekkert smá litlir og allt í Tokyo í takt við það
  4. Hurðirnar á leigubílunum opnast sjálfkrafa, þeir eru ekki hressir ef maður reynir að loka þeim sjálfur.
  5. Talandi auglýsingaskilti út um allt.  Videoskjáir með hljóði, mjög magnað
  6. Geðsjúkur arkitektúr á húsunum hérna.  Það er bókstaflega eins og að vera kominn inn í framtíðina.
  7. Útlendingar eru alls ekki velkomnir allsstaðar.
  8. Allt í ástarhreiðrum (hótelum sem maður legir í klukkutíma).  Ótrúlega margar gerðir í boði af þeim, M/gluggum út á götu, lestarvagnar inní, og þematengd með allskonar rugli fyrir eflaust alla fetisma sem finnast í fólki.  Mjög súrt og fyndið á sama tíma.
  9. Bækurnar hérna snúa allar öfugt, maður byrjar á “endanum”
  10. Lost in Translation myndin er sannsöguleg...alltaf að lenda í því að fólk bara skilur mann engan veginn
  11. Borgin er í þrívídd.  Það eru oft 10 hæða hús, með 4 fataverslunum, 3 börum og 3 skemmtistöðum...án þess að horfa upp byggingarnar veit maður aldrei hvað er í húsinu.
  12. Hér virka ekki venjulegir GSMar, allt í 3G...án 3G síma notar þú ekki GSM hérna...sem sagt Blackberryinn virkar ekki!
   

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

hehe jaaaa það er gaman í Japan! En þið hljótið að vera svona furðulega "óvinalegir" í útliti! Ég var velkomin allstaðar... og allt gert fyrir mig!! En það er satt japanar eru racist og viðurkenna það meira að segja oft sjálfir, en sérstaklega þá eldri kynslóðir eins og yfir 50 sem eru með stæla við okkur "gaijin" sem er útlendingur!! En þið hvítingjarnir eruð velkomin hingað heim til ííííísalandas! xxxxx

erna (IP-tala skráð) 22.11.2007 kl. 18:00

2 identicon

Alveg búin að ná þessu með 12 furðulega hluti...bloggaðu strákur!

Donna (IP-tala skráð) 3.12.2007 kl. 22:01

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband