Laugardagur, 1. september 2007
Heitur pottur við hliðiná rúminu og ekki hurð á klósettinu
...horft um öxl.
Árið 2003 var ég í námi í Kanada með fyrrverandi unnustu minni, Kollu. Við skelltum okkur oft í ferðalög og keyrðum til US eða eitthvað innan Kanada. Fórum einu sinni til Quebec og gistum á þvílíkt posh hóteli. Heitur pottur í herberginu og ég veit ekki hvað og hvað.
Þegar við komum þangað hins vegar var hitti potturinn við hliðina á rúminu, sem þýddi að það var ALLT í móðu, rúmið hálf blautt o.s.frv. þegar við fórum í pottinn.
Klósettið var svo beint á móti rúminu en bara gegnsæ garndýna í staðinn fyrir hurð! Súrrealískasta hótelherbergi sem ég hef gist á!