Bloggfærslur mánaðarins, nóvember 2010
Laugardagur, 13. nóvember 2010
Á Starbucks að fara út í bjórsölu?
Laura Rice, dóttir og samstarfsfélagi Al Rice sem flest markaðsfólk þekkir fyrir að gefa út bókina Positioning mætir hér Scott Bedbury - vin Kevin Keller og fyrrum markaðsstjóra Nike og Starbucks.
Þau takast á í CNBC viðtali um þetta nýja útspil kaffikeðjunnar.
Föstudagur, 12. nóvember 2010
Anne Kennedy að tala um samfélagsmiðla í Kastljósinu í kvöld
KASTLJÓSVIÐTAL
Anne Kennedy var í áhugaverðu viðtali í Kastljósinu í kvöld sem allir áhugasamir um markaðssetningu á netinu ættu að horfa á. Hægt að sjá það á RUV.IS.
Anne er góð vinkona Kristjáns Más en þau vinna nú saman að ritun bókar um leitarvélamarkaðssetningu á mörgum tungumálum. Bókin verður gefin út á ensku í byrjun næsta árs.
ANNE GESTAFYRIRLESARI
Anne verður gestafyrirlesari á námskeiðinu okkar í markaðssetningu á netinu 18. nóvember (sjá www.online.is). Hún mun þar hjálpa þátttakendum að ná betri tökum á markaðsstarfi með samfélagsmiðlunum.
Það eru örfá sæti laus ennþá þann 18, en síðasta námskeið ársins er svo 13. desember.