Þriðjudagur, 16. nóvember 2010
Samkeppni er ekki alltaf fyrirsjáanleg!
Rannsóknir sýna að Range Rover er alls ekki staðsettur á meðal annarra jeppa, heldur sem valkostur við Jagúar, stærri gerð BMW, Mercedes-Benz og jafnvel Porche eða Rolls-Royce.
Videoleigur hafa eflaust ekki séð það fyrir í kringum árið 2000, eða fyrr, að þeirra helsta samkeppni yrði símafyrirtæki og internetið!
Coca-Cola skilgreindi sína helstu samkeppni alltaf Pepsi og aðra gosdrykki. Í dag er það vatn sem er skilgreindur helsti samkeppnisaðili Coca Cola!
Markaðsfólk verður því að greina markaðinn vel og reyna sjá fyrir breytingar og þróun í oft óskildum greinum. Þær breytingar geta nefnilega haft áhrif á aðra geira.