Föstudagur, 22. janúar 2010
Kevin Keller á leið til Íslands - Uppbygging vörumerkjavirðis
Einn fremsti vörumerkjagúrú Bandaríkjanna kemur til Íslands í mars og verður með work-shop á Markaðsdegi Ímark.
Bækurnar hans Strategic Brand Management og Marketing Management (sem hann skrifar með Kotler) eru kenndar í öllum háskólunum hér heima og eru þær vinsælustu erlendis.
Það má með sanni segja að það sé hvalreki að fá hann til landsins! Keller verður á landinu 5 mars og það borgar sig að skrá sig snemma til að fá sæti!
Á heimasíðu Ímark er að finna nánari upplýsingar um Keller og viðburðinn:
http://www.imark.is/Forsida/Vidburdir/Islenski-markadsdagurinn
Meginflokkur: Viðskipti og fjármál | Aukaflokkar: Auglýsingar, Markaðsmál, Markaðssetning á netinu | Facebook